20.05.1921
Neðri deild: 76. fundur, 33. löggjafarþing.
Sjá dálk 2491 í B-deild Alþingistíðinda. (2648)
122. mál, útflutningur og sala síldar
Atvinnumálaráðherra (P. J.):
Út af því, sem stendur í fyrri málsgrein 3. gr., þá álít jeg, að það geti orðið dyr til beggja handa. Sá rjetti skilningur þarf ekki endilega að vera sá, sem háttv. 1. þm. Reykv. (Jak. M.) heldur fram; það má eins skilja það á hinn veginn. Og þegar jeg fyrir mitt leyti, og í nafni stjórnarinnar, tek það hjer fram, að það verði að vera jafnaðarverð á síldinni, þá skil jeg ekki, að nokkur dómstóll mundi dæma eftir hinum skilningnum, eftir þessum fyrirvara, sem þá er samþyktur af þinginu jafnframt þessu frv., ef það nær samþykki.