02.03.1921
Neðri deild: 12. fundur, 33. löggjafarþing.
Sjá dálk 124 í C-deild Alþingistíðinda. (2715)

61. mál, skipting Ísafjarðarprestakalls

Þorleifur Jónsson:

Jeg hefi ekki tekið eftir því, að nokkur uppástunga hafi komið fram um að vísa máli þessu til nefndar, en þar sem fleiri slík mál eru á döfinni, finst mjer rjettast, að það sje athugað af nefnd. Það er því uppástunga mín, að þessu og öðrum slíkum málum verði vísað til allsherjarnefndar. Háttv. flm. (S. St.) á þar líka sæti, og málinu því ekki síður borgið þar.