29.03.1921
Neðri deild: 29. fundur, 33. löggjafarþing.
Sjá dálk 154 í C-deild Alþingistíðinda. (2733)

61. mál, skipting Ísafjarðarprestakalls

Þorleifur Jónsson:

Jeg vil aðeins gera stutta fyrirspurn til allsherjarnefndar. Til nefndarinnar hafa komið tvö frv. um skiftingu prestakalla, þetta frv. og annað frá mjer, um Stafafell. Nú hefir nefndin aðeins afgreitt annað frv., en ekkert sjest bóla á hinu, en þar sem þetta virðist ætla að sigla beggja skauta byr í gegnum deildina, þætti mjer fróðlegt að heyra, hver örlög nefndin ætlar hinu, því mjer hefði þótt rjettast, að bæði frv. hefðu orðið samferða.