14.05.1921
Neðri deild: 70. fundur, 33. löggjafarþing.
Sjá dálk 249 í C-deild Alþingistíðinda. (2888)
82. mál, atvinna við vélgæslu á íslenskum mótorskipum
Frsm. (Pjetur Ottesen):
Frv. kemur með 2 breytingum frá hv. Ed. Fyrri breytingin, á 7. gr„ er aðeins skýring. Síðari breytingin er um að bæta nýrri gr. aftan við frv., þar sem svo er ákveðið, að lögin komi ekki til framkvæmda fyr en mótorskólinn í Reykjavík er tekinn til starfa og fast námsskeið er haldið í Vestmannaeyjum, á Ísafirði, Akureyri og Seyðisfirði.
þetta er veruleg efnisbreyting, sem sennilega yrði þess valdandi, að lögin kæmu ekki til framkvæmda fyrst um sinn. Þó fastlega megi gera ráð fyrir því, að ekki líði á löngu, að mótorskólinn í Reykjavík taki til starfa, þá gæti nokkur og ef til vill langur dráttur orðið á því, að jafnframt væri hægt að halda uppi námsskeiðum á þeim stöðum öllum, er um ræðir í greininni. Nefndin hefir því leyft sjer að bera fram brtt. um að fella þetta innskot í burtu, ekki af því, að auðvitað væri æskilegast, að menn ættu sem auðveldastan aðgang að þessu námi og þyrftu ekki að sækja nám sitt til mjög fjarlægra staða, heldur mundi þetta óhjákvæmilega tefja fyrir því, að ákvæði þau, sem frv. þetta hefir inni að halda, kæmust í framkvæmd, en það blandast naumast nokkrum manni hugur um það, að slíks er ærin þörf.