19.05.1921
Efri deild: 73. fundur, 33. löggjafarþing.
Sjá dálk 250 í C-deild Alþingistíðinda. (2891)

82. mál, atvinna við vélgæslu á íslenskum mótorskipum

Frsm. (Karl Einarsson):

Jeg vildi aðeins gera stutta athugasemd um það, að jeg get ekki mælt með því, að þetta frv. nái fram að ganga, því að sú breyting hefir verið gerð á þessu frv. í hv. Nd., að það er ekki vist, að þeir geti fengið prófskírteini, sem að rjettu lagi eiga að fá þau.