02.05.1921
Neðri deild: 60. fundur, 33. löggjafarþing.
Sjá dálk 315 í C-deild Alþingistíðinda. (2940)

114. mál, sýsluvegasjóðir

Pjetur Ottesen:

Mjer er fullnægt með svarinu, fyrst það er ekki ætlunin með 7. gr. að breyta þessu umrædda skilyrði. Jeg held þó, að það væri rjettara að athuga nánara ákvæði 7. gr, svo og ganga svo frá frv., að þetta verði alls ekki skilið á þann veg, er jeg nefndi í fyrri ræðu minni.