21.03.1921
Neðri deild: 28. fundur, 33. löggjafarþing.
Sjá dálk 521 í C-deild Alþingistíðinda. (3129)

98. mál, vegir

Fjármálaráðherra (M. G.):

Aðeins örfá orð. Jeg álít rjettast, að vísa þessu máli til samgmn., meðal annars af þeirri ástæðu, sem hv. þm. Str. (M. P.) nefndi, og enn fremur af því, að hjer hlýtur að verða um að ræða endurskoðun á vegakerfinu í heild sinni. Annars undrar það mig ekki, þó raddir, eins og þær, sem hjer hafa komið fram, heyrist, því vegirnir eru nú orðnir þungir á sýslusjóðunum. Hitt er annað mál, hvort unt er að bæta úr því. Annars sje jeg ekki ástæðu til þess að hafa langar umr. á þessu stigi málsins.