05.03.1921
Efri deild: 15. fundur, 33. löggjafarþing.
Sjá dálk 166 í B-deild Alþingistíðinda. (318)

38. mál, verslun með tilbúinn áburð og kjarnfóður

Frsm. (Sigurður Jónsson):

Jeg lýsi hjer með yfir því, að brtt. á þskj. 102 er, af alveg sjerstökum ástæðum, tekin aftur. Aðrar brtt. hafa ekki komið fram, og sje jeg því ekki ástæðu til að tala frekar um málið, en vænti þess, að hv. deild samþykki það og leyfi því að ganga til háttv. neðri deildar.

Frv. samþ. með 10 shlj. atkv. og afgr. til Nd.