18.05.1921
Neðri deild: 72. fundur, 33. löggjafarþing.
Sjá dálk 97 í D-deild Alþingistíðinda. (3468)

124. mál, rannsókn á sölu íslenskra landbúnaðarafurða

Frsm. (Jón Sigurðsson):

Það er aðeins örstutt athugasemd. Jeg vildi geta þess, að nefndinni láðist að bera þetta erindi undir fjvn. Og þó að búast megi við, að þessar rannsóknir hafi einhver fjárútlát í för með sjer, vænti jeg þó, að hv. fjvn. hafi ekki neitt sjerstakt við till. þessa að athuga.