20.05.1921
Neðri deild: 75. fundur, 33. löggjafarþing.
Sjá dálk 112 í D-deild Alþingistíðinda. (3505)

146. mál, skaðabótagreiðsla út af hrossakaupum landsstjórnarinnar sunnanlands

Bjarni Jónsson:

Jeg vildi aðeins gera örstutta athugasemd, sem er óháð því, hvernig till. fer. Jeg vildi mælast til þess við hæstv. stjórn, að hún ljeti frádráttinn verða Norðlendingamegin næstu fjögur árin til jafnaðar.