19.05.1921
Efri deild: 73. fundur, 33. löggjafarþing.
Sjá dálk 141 í D-deild Alþingistíðinda. (3538)

121. mál, ullariðnaður

Forseti (G. B.):

Jeg hefi ekkert á móti að verða við tilmælum hv. þm. Snæf. (H. St.), en jeg þarf samþykki hv. deildar til þess, því að þingsköp ákveða, að tillögur til þál. skuli við síðari umr. sæta sömu meðferð og frv. við 3. umr. En ef enginn hv. þdm. mælir á móti, vil jeg telja það samþykt án atkvgr., að atkv. verði greidd um hvern lið till. út af fyrir sig.