23.02.1921
Efri deild: 7. fundur, 33. löggjafarþing.
Sjá dálk 143 í D-deild Alþingistíðinda. (3545)

50. mál, nefnd til að íhuga fossamálið

Flm. (Guðmundur Ólafsson):

Jeg býst við, að hv. deild sje sammála flm. í því, að nauðsynlegt sje að skipa sjerstaka nefnd til að íhuga fossamálið og að hún sje kosin nú þegar, til þess að hún geti haft samvinnu við fossanefnd Ed. Sú nefnd er skipuð 7 mönnum, og er því sjálfsagt, að þessi hv. deild kjósi 5 manna nefnd.