26.02.1921
Efri deild: 9. fundur, 33. löggjafarþing.
Sjá dálk 147 í D-deild Alþingistíðinda. (3550)

53. mál, nefnd til að rannsaka orsakir fjárkreppu bankanna

Forseti (G. B.):

Hjer er komin fram skrifleg brtt. frá hv. þm. Vestm. (K. E.) þess efnis, að í stað 3 manna nefnd skuli koma 5 manna nefnd, og vil jeg nú, með leyfi hæstv. forsætisráðherra, bera það upp fyrir hv. deild, hvort leyfð skuli þau afbrigði frá þingsköpum og brtt. verði borin upp.