23.02.1921
Neðri deild: 7. fundur, 33. löggjafarþing.
Sjá dálk 199 í D-deild Alþingistíðinda. (3592)

51. mál, viðskiptamálanefnd Nd

Forseti (B. Sv.):

þá verður látin fara fram atkvgr. um till. þessar. Grundvöllurinn, sem till. byggjast á, er nokkum veginn sá sami, sá, að athuga viðskiftamál landsins. En munurinn liggur helst í því, að till. á þskj. 51 leggur meiri áherslu á eina grein viðskiftamálanna heldur en brtt. á þskj. 54, sem útilokar þó eigi, að öllum málunum megi þangað vísa.

Jeg vil þá leyfa mjer að bera brtt. á þskj. 54 fyrst undir atkv.