24.02.1921
Neðri deild: 8. fundur, 33. löggjafarþing.
Sjá dálk 280 í D-deild Alþingistíðinda. (3659)

48. mál, sambandslögin

Flm. (Bjarni Jónsson):

Ólíkt höfumst við að. Jeg stilli mig, og kem ekki fram með vantraustið, heldur miklu fremur með traust á stjórnina, þar sem jeg þó treysti henni að framfylgja till. minni. En hæstv. forsætisráðherra stendur upp með þjósti og vill þetta að vantrausti.

Jeg hefi áður beðið hann og alið á honum að kippa ýmsu af því í liðinn, sem tekið er fram í till. minni. Það hefir hann hingað til ekki gert, og er það því ekki nema að vonum, að þessi till. er hjer fram komin.