19.03.1921
Neðri deild: 27. fundur, 33. löggjafarþing.
Sjá dálk 585 í D-deild Alþingistíðinda. (3820)

87. mál, vantraust á núverandi stjórn

Forseti (B. Sv.):

Hæstv. fjrh. (M. G.) segir, að það sje aðeins bókunin, sem berast eigi undir deildina, og þar með einnig sá úrskurður, sem í bókuninni er fólginn. Þessu vil jeg mótmæla. Það er misskilningur, að breytt verði úrskurði, sem frá er skýrt í gerðabók, hvort sem hún er samþykt athugasemdalaust eða ekki.