19.03.1921
Neðri deild: 27. fundur, 33. löggjafarþing.
Sjá dálk 594 í D-deild Alþingistíðinda. (3837)

87. mál, vantraust á núverandi stjórn

Forseti (B. Sv.):

Þar sem þessi úrskurður er ekki á dagskrá, þá finn jeg mig ekki skyldan að svara fyrirspurn þessa hv. þm. (S. St.), þótt jeg hins vegar sje þess hvergi varbúinn. En jeg tel naumast viðeigandi, að einstakir þm. eyði hjer þingtímanum til þess að hlýða forseta yfir þingsköp.