05.04.1921
Neðri deild: 35. fundur, 33. löggjafarþing.
Sjá dálk 205 í B-deild Alþingistíðinda. (388)
2. mál, erfðafjárskattur
Frsm. (Jakob Möller):
Hæstv. fjrh (M. G.) kvartaði um það, að „fósturbarn“ væri „óákveðið hugtak“, og skilst mjer því, að rjett sje að gera grein fyrir því, hvað nefndin skilur við það hugtak. Það er í þessu sambandi ekkert annað en það, sem svo er kallað í arfleiðsluskrá. Það kemur ekki þessu máli við, hvort börnin hafa verið lengri eða skemri tíma hjá fósturforeldrum, heldur hitt, hvort samband fósturforeldra og barna er orðið svo náið, að foreldrar vilji kalla þau fósturbörn sín og veita þeim þann rjett, sem því þá kann að fylgja. Þetta ákvæði vill nefndin setja, til þess að öll fósturbörn njóti að þessu leyti sama rjettar og sú tegund fósturbarna, sem „kjörbörn“ eru kölluð og „ættleidd“ hafa verið, eins og kallað er. Jeg skal játa það, að mjer er ekki um þann sið, þetta löghelgaða barnahnupl, og sje ekki ástæðu til þess að hvetja menn til að taka hann upp, meira en gert er þegar.
Jeg get fallist á, að fósturbörn teljist að eins þau, sem svo eru nefnd af fósturforeldrum í erfðaskrá, og ef sá skilningur er lagður í orðið, þarf það engum ruglingi að valda.