27.04.1921
Efri deild: 53. fundur, 33. löggjafarþing.
Sjá dálk 224 í B-deild Alþingistíðinda. (444)

4. mál, lestagjald af skipum

Fjármálaráðherra (M. G.):

Jeg get ekki gengið inn á þessa skoðun háttv. 2. landsk. þm. (S. E.). Það er, eins og allir vita, almenn regla um öll frv., að hægt er að koma að brtt. til síðustu stundar, og þar gilda sömu reglur um fjárlagafrv. og önnur frv.