08.04.1921
Neðri deild: 38. fundur, 33. löggjafarþing.
Sjá dálk 437 í B-deild Alþingistíðinda. (635)

47. mál, tollalög

Magnús Pjetursson:

Um leið og jeg leyfi mjer að taka aftur upp brtt. á þskj. 208, þá vil jeg geta þess, að þótt tóbakseinkasalan hafi farið til háttv. Ed., þá sje það engin goðgá af háttv. Nd. að veita henni leyfi til að velja, hverja leið hún vill fara, tollhækkunarleiðina eða einkasöluleiðina.