10.05.1921
Efri deild: 66. fundur, 33. löggjafarþing.
Sjá dálk 2493 í B-deild Alþingistíðinda. (65)

Traustsleitun stjórnarinnar í efri deild

forsætisráðherra (J. M.):

Það fer nú að líða að þinglokum, og vildi jeg því biðja hæstv. forseta að bera það undir þessa háttv. deild, hvort hún óski, að ráðuneytið beiðist nú lausnar eða ekki. Vildi jeg jafnframt óska þess, að þetta fari fram umræðulaust.