10.05.1921
Efri deild: 66. fundur, 33. löggjafarþing.
Sjá dálk 2494 í B-deild Alþingistíðinda. (68)

Traustsleitun stjórnarinnar í efri deild

Sigurður Eggerz:

Það er hjer að ræða um traust eða vantraust á hæstv. stjórn, og verð jeg að telja með öllu óforsvaranlegt, að slíkt mál gangi í gegn umræðulaust, og verð jeg því undir öllum kringumstæðum að krefjast þess, að umræður um málið verði leyfðar.