11.05.1921
Neðri deild: 67. fundur, 33. löggjafarþing.
Sjá dálk 847 í B-deild Alþingistíðinda. (911)

5. mál, lífeyrissjóður embættismanna og ekkna þeirra

Fjármálaráðherra (M. G.):

Jeg sagði ekki, að hjer væri brotinn rjettur á embættismönnum. En þar sem háttv. Ed. heldur fram sömu skoðun og stjórnin, þá ætti háttv. frsm. (B. H.) ekki að koma á óvart, þótt jeg vilji láta samþ. frv. eins og það kom frá henni.