22.04.1922
Neðri deild: 53. fundur, 34. löggjafarþing.
Sjá dálk 875 í B-deild Alþingistíðinda. (1012)

89. mál, aðflutningsbann á áfengi

Forsætisráðherra (S. E.):

Jeg hefi að vísu ekki komið hingað með öll hin miklu gögn málsins. Hjelt jeg, að nægilegt væri, að stjórnin hefir lagt þau fyrir 12 manna nefnd, sem hefir haft þau til athugunar mestallan þingtímann og auk þess sent skeyti um þetta efni og lagt fram svarið við því.

En það er óþarft að deila lengur um þetta mál. Það má fá svör beint frá þeim aðilja, sem semur fyrir oss formlega.