25.04.1922
Efri deild: 52. fundur, 34. löggjafarþing.
Sjá dálk 893 í B-deild Alþingistíðinda. (1033)

89. mál, aðflutningsbann á áfengi

Frsm. (Halldór Steinsson):

Jeg verð að líta svo á, að þetta sjeu fullmiklar efasemdir. Ef Danir gera samning aðeins til eins árs, sem er mjög líklegt eftir fyrri framkomu þeirra, þá veit jeg ekki, hvað er í húfi fyrir oss. Eigum vjer vafalaust þá jafnt og nú aðstoð Dana vísa, er til samninga kemur.