06.04.1922
Efri deild: 38. fundur, 34. löggjafarþing.
Sjá dálk 894 í B-deild Alþingistíðinda. (1036)

82. mál, útflutningsgjald af síld o. fl.

Forseti (G. B.):

Hjer þarf tvöföld afbrigði frá þingsköpum til þess að mál þetta megi koma til umræðu, því að ekki er liðin nema ein nótt frá útbýtingu frumvarpsins, og í öðru lagi er það of seint fram komið. — Að fengnu leyfi stjórnarinnar mun jeg því bera það undir háttv. deild, hvort hún leyfi þessi afbrigði.