03.03.1922
Efri deild: 12. fundur, 34. löggjafarþing.
Sjá dálk 8 í C-deild Alþingistíðinda. (1083)
9. mál, hitun kirkna
Guðmundur Ólafsson:
Það eru aðallega orð háttv. frsm. nefndarinnar (S. F.), er koma mjer til að taka til máls. Jeg get ekki fallist á, að það sje ósanngjarnt að gera kirknaeigendum að skyldu að leggja til ofna í kirkjur sínar, því að til þeirra renna allar tekjur þeirra, sem nýlega hafa verið hækkaðar að góðum mun. Söfnuðirnir eru því þeir, sem fyrir skakkafallinu verða, er þeir eru neyddir til að greiða kirkjugjöld til þeirra kirkna, sem venjulega eru ekki nothæfar, vegna kulda, annan helming ársins.
Reyndar vil jeg ekki mótmæla því, að þessu megi koma í lag án þess að frv. þetta verði að lögum, en samþykt þess mundi þó gera það auðveldara og flýta fyrir því. Þingið hefir líka áreiðanlega oft samþykt ýms frv., er við minni rök höfðu að styðjast. Annars sýnir það sjálfsagt mikla fáfræði hjá mjer, að jeg veit eigi vel, hvað þessar ljenskirkjur eru, sem svo mikið er talað um. Mun svo vera um fleiri hv. þm., því að hjá engum þeirra, er jeg hefi spurt að þessu, hefi jeg fengið skýlaust svar. Væri því gott að fá upplýsingar um það frá hv. nefnd.