10.03.1922
Neðri deild: 19. fundur, 34. löggjafarþing.
Sjá dálk 125 í C-deild Alþingistíðinda. (1171)

45. mál, frestun á framkvæmd laga um fræðslu barna og laga um skipun barnakennara og laun þeirra

Pjetur Ottesen:

Hv. 4. þm. Reykv. (M. J.) hefir gert till. um það að vísa þessu máli til mentmn. Sem einn af flm. þessa frv. vil jeg leyfa mjer að mæla á móti því, þar sem jeg tel, að það sje gersamlega á móti venju og jafnvel á móti anda þingskapanna, að vísa máli, sem komið er frá nefnd eða verið hefir í nefnd, til annarar nefndar.