21.03.1922
Neðri deild: 28. fundur, 34. löggjafarþing.
Sjá dálk 226 í C-deild Alþingistíðinda. (1237)

46. mál, afnám kennaraembættis í hagnýtri sálarfræði

Frsm. (Sigurður Stefánsson):

Jeg þykist ekki þurfa margt að segja, og læt mjer nægja að vísa til framsöguræðu minnar við 1. umr. þessa máls, En þó vil jeg taka fram, vegna hv. 4. þm. Reykv. (M. J.), að þetta mál mun ekki verða látið fara út úr deildinni án þess að álit háskólaráðsins verði áður birt.

Annars er hv. þdm. guðvelkomið að leika áfram þessa komediu, sem þeir nú hafa byrjað á við atkvgr. um síðasta mál, en vita mega þeir það, að alt slíkt spyrst út til þjóðarinnar.