23.03.1922
Neðri deild: 30. fundur, 34. löggjafarþing.
Sjá dálk 182 í B-deild Alþingistíðinda. (130)
1. mál, fjárlög 1923
Fjármálaráðherra (Magn.J.):
Jeg fæ ekki betur sjeð en að háttv. fjvn. hafi farið mjög hóflega í sakirnar. Hún leggur til, að gerðar verði nokkrar smáhækkanir, og þar sem jeg þekki til, er þetta ekki of langt gengið. Get jeg þar nefnt 59. lið í brtt. nefndarinnar, 500 kr. til síra Guðlaugs, og 61. liðinn um 300 kr. hækkun á styrk Páls Erlingssonar. Þetta eru menn, sem unnið hafa landinu lengi og með trúmensku, og eru þessi eftirlaun síst of mikil. Líka get jeg nefnt 60. liðinn, um styrk til ekkju Þorsteins heitins Erlingssonar.
Ekki tel jeg rjett að leggjast á móti 64. lið. Þingið er áður búið að sýna, að það telur sanngjarna slíka eudurgreiðslu, en vitanlega verður það metið, hvort hjer stendur eins á og um það tilfelli, sem Alþingi þegar hefir felt úrskurð um.