16.03.1922
Neðri deild: 24. fundur, 34. löggjafarþing.
Sjá dálk 346 í C-deild Alþingistíðinda. (1371)

47. mál, myntlög

Flm. (Bjarni Jónsson):

Það stendur svo einkennilega á um þetta mál, að það þarf engrar rannsóknar eða undirbúnings við. Við erum um 20 ára skeið bundnir við Danmörku um myntsamband. Hjer er að eins ætlast til, að Íslendingar noti rjett sinn að lögum og komist í myntsamband við Svíþjóð og Noreg. —