25.03.1922
Neðri deild: 32. fundur, 34. löggjafarþing.
Sjá dálk 352 í C-deild Alþingistíðinda. (1382)

47. mál, myntlög

Fjármálaráðherra (Magn. J.):

Jeg get ekki gefið hv. þm. Dala. (B. J.) svar fyrir hönd allrar stjórnarinnar, þegar af þeirri ástæðu, að forsrh. (S. E.) er ekki viðstaddur. En fyrir mig sjálfan get jeg sagt það, að jeg er ekki mótfallinn því, að þessara samninga sje leitað við tækifæri.