03.04.1922
Neðri deild: 39. fundur, 34. löggjafarþing.
Sjá dálk 439 í C-deild Alþingistíðinda. (1454)

65. mál, sameining Árnessýslu og Rangárvallasýslu

Frsm. (Stefán Stefánsson):

Jeg bað eiginlega ekki um orðið. Jeg hefi við 1. umr. málsins tekið fram það, sem jeg tel þurfa, um helstu atriði þess, og því ekki verið mótmælt með neinum rökum, því hv. 2. þm. Árn. (Þorl. G.), sem er að byrja „að hugsa“, vil jeg ekki trufla, ef hann mætti þá verða kjósendum sínum til meiri ánægju. Sje jeg því ekki neina ástæðu til að tala frekar um málið að svo komnu.