04.04.1922
Neðri deild: 40. fundur, 34. löggjafarþing.
Sjá dálk 478 í C-deild Alþingistíðinda. (1485)
29. mál, sameining Dalasýslu og Strandasýslu
Forsætisráðherra (S. E.):
Það er bara örlítil athugasemd við ræðu háttv. 3. þm. Reykv. (J. Þ.). Það var alger misheyrn hjá þeim háttv. þm., að jeg hafi í ræðu minni áðan farið fram á það, að máli þessu væri vísað til stjórnarinnar. Jeg gerði aðeins grein fyrir, hvers vegna jeg hefði ekki tekið til máls. En því slepti jeg, sem vel mætti þó minnast á, að þar sem l½ vika er nú gengin í það að ræða um kennaraembættin við háskólann og fleira, sem ekki hefir borið eða ber, á þessu þingi, neinn árangur, þá vildi jeg ekki að þarflausu auka umr., sem bara leiða til kostnaðar.