25.02.1922
Neðri deild: 9. fundur, 34. löggjafarþing.
Sjá dálk 568 í C-deild Alþingistíðinda. (1558)
32. mál, aðflutningsbann á áfengi
Bjarni Jónsson:
Jeg ætla mjer ekki að ræða þetta mál meira í dag, en aðeins segja nokkur orð út af ræðu háttv. 1. þm. Reykv. (Jak. M.).
Í þessu efni hlýðir ekki að ræða sölu Norðmanna, nje hver niðurstaðan yrði, ef Norðmenn næðu samningum við Spánverja, en Íslendingar ekki. — En dæmi mitt er rjett. Það er sama dæmið sem á sjer stað í öllum viðskiftum: Fyrir þetta færðu þetta. — En eins og öllum er kunnugt, sem það vilja vita, er hjer ekki verið að ræða um sjálfstæði þjóðarinnar, heldur eingöngu verslunarsamning.
Hvað því viðvíkur, að kent hafi hræðslu í ræðu minni, þá skal jeg játa, að þar bólaði á einni tegund af hræðslu. Um suma er sagt, að þeir óttist guð og annars ekkert, en jeg óttast heimskuna og annars ekkert. Og svo er það um þetta mál; það er vitleysan, sem jeg óttast.
Annars vil jeg, að málið verði rannsakað og gangi reglulegan gang á þinglegan hátt.