16.03.1922
Efri deild: 21. fundur, 34. löggjafarþing.
Sjá dálk 573 í C-deild Alþingistíðinda. (1571)
7. mál, einkaleyfi
Frsm. (Karl Einarsson):
Eins og hv. deild sjer, er ekki um stórvægilegar breytingar á frv. þessu að ræða.
Aðalbreytingarnar, sem nefndin hefir gert við frv. þetta, eru tvær.
Einn af háttv. nefndarmönnum hjelt því að vísu fram, að heppilegra væri að skipa sjerstaka nefnd til að hafa á hendi þær rannsóknir, sem frv. þetta gerir ráð fyrir og nauðsynlegar eru til þess að ákveða, hvort einkaleyfi skuli veita eða ekki.
Þrátt fyrir það, þó þessi hv. nefndarmaður hafi lagt hið sama til áður, vildi hann þó fallast á að fara þessa leið, sem frv. ákveður, með þeirri brtt., að ráðuneytið alt geri þær ákvarðanir, sem frv. gerir ráð fyrir að atvinnumálaráðherra skuli gera. Gildir þetta um allar greinar frv., t. d. líka um 8. gr. Kemur því til stjórnarráðsins alls, hvort leyfi þessi verði veitt eða eigi.
Hin brtt. ákveður það, að leyfið skuli veitt til 15 ára í senn, en ekki, eins og frv., gerir ráð fyrir, að það sje veitt þrisvar, til 5 ára í einu.
Nefndin hefir aflað sjer upplýsinga um það, að í öðrum löndum eru einkaleyfin víða veitt til 15 og jafnvel 20 ára. Á þetta hefir nefndin öll getað fallist og telur það heppilegra að veita það í einu, ef leyfið er veitt á annað borð.
Hjer á ekki að vera skertur rjettur neins manns, því uppgötvunin á að vera frumleg, og er þá rjett, að sá njóti þess, er hana gerði.
Þá er það brtt. við 8. gr., sem kveður svo á, að tíminn frá því að leyfi var veitt og þar til uppgötvunin er komin í framkvæmd, skuli vera 5 ár.
Nefndin áleit rjett að gera þessa breytingu, þó að þessi frestur sje víða ákveðinn 3 ár, vegna þess, að hjer á landi eru flestar framkvæmdir bundnar meiri örðugleikum en annarsstaðar.
Annars telur nefndin, að frv. geti orðið að góðu gagni með umræddum breytingum, og það teljum vjer hagfelt og tryggilegt, að stjórnin þurfi eigi að rannsaka málið frá rótum, ef sótt hefir verið um leyfi annarsstaðar og það veitt. En í þeim tilfellum, að aðeins sje sótt um leyfi þetta hjer, rannsakar ráðuneytið þetta auðvitað frá rótum.
Um aðrar brtt. þarf jeg ekki að ræða. Þær eru ýmist svo, að leiðrjettar eru prentvillur, eða bein afleiðing af þeim aðalbreytingum, sem nefndin hefir gert og jeg hefi nú lýst.