16.03.1922
Efri deild: 21. fundur, 34. löggjafarþing.
Sjá dálk 575 í C-deild Alþingistíðinda. (1573)

7. mál, einkaleyfi

Sigurjón Friðjónsson:

Viðvíkjandi brtt. skal jeg leyfa mjer að taka það fram, að jeg tel breytinguna um, að ráðuneytið komi í stað atvrh., til bóta. En aftur tel jeg vafasamara um þá brtt. að færa tímabilið upp í 15 ár. Jeg tel, að ef tíminn væri styttri, þá væri minni hætta á því, að leyfi þessi væru misbrúkuð.

Jeg er sem sagt dálítið í vafa um þetta ákvæði.