11.04.1922
Efri deild: 42. fundur, 34. löggjafarþing.
Sjá dálk 724 í C-deild Alþingistíðinda. (1664)

84. mál, útflutningsgjald af síld o. fl.

Flm. (Karl Einarsson):

Ástæðurnar fyrir því, að frv. þetta er fram komið, eru teknar fram í greinargerðinni, og get jeg látið mjer nægja að vísa til hennar. Vænti jeg þess, að hv. deild skilji nauðsyn málsins og leyfi frv. að ganga áfram. Legg jeg það til, að því verði vísað til fjhn.