16.02.1922
Neðri deild: 2. fundur, 34. löggjafarþing.
Sjá dálk 23 í B-deild Alþingistíðinda. (17)

Sætaskipan

Sveinn Ólafsson:

Úr því hjer hafa verið þingsköp rofin og vikið frá þeirri þingskapareglu að hluta um sæti í lok 1. fundar á annað borð, þá sýnist mjer að ekki beri að hluta um sæti á þessum fundi; slíkt ætti þá alveg eins við á síðasta þingfundi, og fyrir mitt leyti vil jeg mótmæla sætahlutun hjeðan af, úr því að hún fór eigi fram á rjettum tíma.