25.02.1922
Neðri deild: 9. fundur, 34. löggjafarþing.
Sjá dálk 50 í D-deild Alþingistíðinda. (1726)

28. mál, innlend skiptimynt

Fjármálaráðherra (M. G.):

Mjer er það ekkert kappsmál, að málinu verði vísað til viðskiftamálanefndar, en jeg held þó varla, að hún hafi svo mikið að starfa, að einn eða tveir menn af þeim tólf, sem skipa hana, geti ekki fengið tíma til þess að athuga þetta mál.