25.03.1922
Sameinað þing: 8. fundur, 34. löggjafarþing.
Sjá dálk 60 í D-deild Alþingistíðinda. (1749)

61. mál, breyting á hæstaréttarlögum

Stefán Stefánsson:

Jeg vil, fyrir hönd sparnaðarnefndarinnar, sem flytur þessa þingsályktunartillögu, óska þess, að hún verði tekin af dagskrá, af þeirri ástæðu, að samskonar mál hefir verið lagt fyrir hv. Nd. þykir nefndinni því rjett að láta fara fram um það frv. atkvæðagreiðslu áður en þessi till. verður tekin til umræðu.