16.02.1922
Neðri deild: 2. fundur, 34. löggjafarþing.
Sjá dálk 24 í B-deild Alþingistíðinda. (18)

Sætaskipan

Forseti (B. Sv.):

Þótt láðst hafi að framfylgja þessu ákvæði á 1. fundi, þarf ekki af því að leiða, að því skuli seint eða aldrei framfylgt verða. Þetta getur ekki valdið neinum baga. Það sýnist því rjettast að bera þessi afbrigði undir atkvæði hv. deildarmanna nú, ef hæstv. stjórn leyfir.