22.04.1922
Neðri deild: 52. fundur, 34. löggjafarþing.
Sjá dálk 111 í D-deild Alþingistíðinda. (1805)

88. mál, saga Alþingis

Magnús Guðmundsson:

Jeg vildi leyfa mjer að beina þeirri fyrirspurn til hv. flm., hvort þeir hafi gert nokkra áætlun um kostnaðarhlið þessa máls. Jeg get ekki betur sjeð en að hjer sje um risaverk að ræða, sem samkvæmt „prógramminu“ hljóti að kosta vinnu margra manna og stórfje.