06.04.1922
Neðri deild: 42. fundur, 34. löggjafarþing.
Sjá dálk 146 í D-deild Alþingistíðinda. (1854)

75. mál, rannsókn á máli Árna Theódórs Péturssonar

Forsætisráðherra (S. E.):

Hv. þm. Barð. (H. K.) komu á óvart ummæli mín um embættaveitingar. Við höfum nú talað svo margt saman, bæði um þetta og annað, að jeg mundi eiga erfitt að muna slíkt alt. En vel má vera, að jeg hafi sagt, að jeg mundi veita eldri umsækjendum embætti, að öðru jöfnu, en hitt er jeg viss um, að jeg hefi aldrei sagt, að aldurinn einn ætti að ráða í slíkum efnum.