04.04.1922
Neðri deild: 40. fundur, 34. löggjafarþing.
Sjá dálk 260 í D-deild Alþingistíðinda. (1955)

77. mál, skaðabótamál gegn Íslandsbanka

Magnús Kristjánsson:

Jeg ætla mjer ekki að fara að ræða þetta mál hjer, því það er svo umfangsmikið, að varla er unt að ráða því til lykta hjer, án mikils undirbúnings og rannsókna. Geri jeg það því að tillögu minni, að málinu verði vísað til hæstv. stjórnar.