24.04.1922
Sameinað þing: 12. fundur, 34. löggjafarþing.
Sjá dálk 426 í D-deild Alþingistíðinda. (2038)

90. mál, landsverslunin

Atvinnumálaráðherra (Kl. J.):

Þegar jeg gaf yfirlýsinguna í dag, fyrir hönd stjórnarinnar, miðaði jeg eðlilega við tillögur þær, sem á dagskrá eru. Þá hafði hv. þm. Dala. (B. J.) enn ekki borið fram till. til rökstuddrar dagskrár, þá sem nú kemur til atkv. Ef hún verður samþykt, þá gildir yfirlýsingin jafnt fyrir því. Þetta vildi jeg leyfa mjer að taka fram, þar eð mjer virtust nokkrir hv. þm. vera í efa um það.