03.04.1922
Neðri deild: 39. fundur, 34. löggjafarþing.
Sjá dálk 432 í D-deild Alþingistíðinda. (2050)

72. mál, prentunarkostnaður ríkissjóðs

Magnús Pjetursson:

Þar sem bæði orðalag þessarar till. er óviðkunnanlegt, og margir eru ófúsir að samþykkja seinni lið hennar, en telja hins vegar sjálfsagt, að stjórnin geri sitt besta í þessu máli, þá vil jeg leyfa mjer að stinga upp á því, að hv. deild vísi þessu máli til stjórnarinnar, án þess að greidd sjeu atkv. um sjálfa þál.