10.04.1922
Efri deild: 41. fundur, 34. löggjafarþing.
Sjá dálk 367 í B-deild Alþingistíðinda. (218)
1. mál, fjárlög 1923
Forsætisráðherra (S. E.):
Jeg get látið mjer nægja að koma með örfáar athugasemdir, og vil byrja með sömu ummælum og áðan, að þakka hinni háttv. nefnd fyrir till. hennar, að því er snertir þá liði fjárlaganna, sem heyra undir mitt ráðuneyti. Jeg tek undir það með nefndinni, að styrkur verði veittur til ljósmyndunar skjala, því jeg þykist sannfærður um, að hann geti orðið okkur að góðu haldi við samning sögu landsins.
Um bókasafnsstyrkinn er jeg sömuleiðis samþykkur háttv. nefnd. Jeg hefi sjálfur átt kost á því að kynnast lestrarþorsta alþýðunnar og sjá, hvað bókasöfn geta komið að miklu gagni. Erfiðleikar landsmanna að ná í bækur eru mjög tilfinnanlegir, svo jeg tel þeim styrk í alla staði vel varið, sem gengur til bókasafna.
Um styrkinn til ungmennafjelaganna vil jeg aðeins geta þess, að jeg er nefndinni samþykkur, að hann sje veittur. Þar er að ræða um holla og góða starfsemi, sem á alt hið besta skilið.