10.04.1922
Efri deild: 41. fundur, 34. löggjafarþing.
Sjá dálk 388 í B-deild Alþingistíðinda. (231)

1. mál, fjárlög 1923

Frsm. (Halldór Steinsson):

Jeg vildi aðeins svara fyrirspurn frá háttv. þm. Vestm. (K. E.) um það, hvort nefndin mundi vilja styðja að því, að ríkissjóður tæki þátt í kostnaði við legu skipsins Þórs í þurkví. Jeg hefi borið mig saman við nefndina um þetta atriði, og hefir hún komist að þeirri niðurstöðu, að hún vilji engu lofa um það.