01.03.1922
Efri deild: 10. fundur, 34. löggjafarþing.
Sjá dálk 437 í B-deild Alþingistíðinda. (270)

38. mál, sérstakar dómþinghár

Fjármálaráðherra (M. G.):

Það virðist óþarfi að mæla með frv. þessu, því að það fór nefndarlaust gegnum háttv. Nd. Vona jeg, að eins geti orðið hjer, því að brtt. á þskj. 47 eru sama eðlis og innihald frumvarpsins að öðru leyti, og ættu því ekki að spilla fyrir framgangi þess.